
Dixon Lounge er sérhannaður fyrir þá sem meta gæði, næði og rólegt umhverfi þar sem fáguð stemning og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi. Staðurinn er eingöngu ætlaður meðlimum og er boðið upp á þrjár mismunandi aðildarleiðir
Rýmið er hannað með sveigjanleika í huga og hentar jafnt fyrir viðskiptafundi, afslappað vinnurými eða drykk með félögum að vinnudegi loknum.
Hjá Dixon Lounge er boðið upp á úrval góðra vína - rauðvín, hvítvín, rósavín og kampavín frá mörgum virtum og áhugaverðum vínframleiðendum. Fyrir þá sem kjósa gott kaffi þá bjóðum við upp á sérvaldar kaffitegundur, hvort sem þú kýst klassískt espresso, lungo eða vilt prófa sérvaldar kaffitegundir. Við tryggjum við að allt úrval drykkja, áfengra og óáfengra, mæti væntingum vandlátra meðlima.
Ef halda á fund eða annan hitting er hægt að panta létta rétti í bland við klassíska smárétti til að bæta á heildarupplifunina. Til að bóka mat þarf að senda tölvupóst á dixonlounge@atwork.is með a.m.k. tveggja daga fyrirvara.
Hljóðvist á staðnum er vandlega útfærð og tónlist sem skapar hlýja og látlausa stemningu svífur um í rólegu andrúmslofti. Til að tryggja órofna upplifun eru allar myndatökur á staðnum óheimilar.
Dixon Lounge er staðurinn sem þú mættir á til að slaka á og njóta augnabliksins, án áreitis. Komdu og upplifðu stað þar sem gæði og næði mætast í fullkomnu jafnvægi.
Aldursviðmið á Dixon er 30 ár.
Ath! Takmarkaður meðlimafjöldi


